Bloggsvæði Prinsessunnar

Í dag er góður dagur!

07.01.2007 20:37:28 / annamaol

jól.. áramót.. nýtt ár!

Blessuð veriði og gleðilegt nýtt ár.. ár sem verður ár gleði og hamingju og svo margs annars.. 2007!! hafiði pælt í því hvað það var ótrúlega stutt síðan aldamótin 2000 voru! man meira að segja í hverju ég var.. hvað ég var að gera og með hverjum. en.. áramótin 2007 eyddi ég hér með familíunni. borðuðum dýrindis mat eins og flest aðra daga svona milli jól og áramóta.. svo kl 8 var haldið á skrúðgöngu og endað á brennu hér í skerjó. þetta er víst árlegt og við erum með sér brennu og allt. margt var fólkið og svaka flott "hljómsveit" sá um söng. komum heim að henni lokinni og fengum okkur eftirrétt og horfðum svo á skaupið sem mér fannst.. tja ekkert spes?. hef aldrei horft á það áður og er kannski bara ekki með húmorinn í mér.. veit ekki?

Hér var svo bara partý langt fram á nótt.. fullt af flottu og fullu fólki. Minn hópur stakk svo bara af í annað partý.. sem var já.. ekki beint party.. hahaha þið sem fóruð með mér.. já allavega. var komin heim svo bara um half 7 en viti menn.. ég var læst úti. enginn heima. enginn lykill á leynistaðnum né neitt. hringdi og hringdi í alla familíunna en.. ekkert svar. fann ekki annað ráð en að stinga mer inn um gluggann hjá mér, þar sem allir aðrir voru lokaðir. það gekk svona semí vel og um leið og ég var buin að því.. heyri ég í mö og pa frammi.. jaja.. þau voru að koma heim! týpist. skemmti mer ótrúlega vel og þetta verður gert að hefð, að vera heima um áramót og jól!! þó ég ætla til ammeríku aftur næst en.. eftir það bara =)

Jólin voru ótrúlega fín líka. Vorum bara hér heima familían + einn gestur. Fengum brjálað góðann kalkún og gegggjaðan ís og "muss" (sem ég gerði btw. ) . Fékk rosa margt fallegt í jólagjöf.. (man samt aldrei þegar ég er að skrifa eða segja frá) en réttast er að segja frá því að ég fékk svaka fína myndavél sem er búin að njóta sín þvílíkt síðan. fékk bol og leggings og geggjaðan eyrnalokk frá jojo minni.. já plús bleikan kött, sem fylgir mer hvert sem eg fer. fékk ilmvötn, skart, skrem, dvd og margt margt fleirra.

Skólinn er byrjaður aftur. fórum í hann á föstud. verð í 17 einingum í töflu.. sem er bara lala, langði í einn áfanga í viðbót en fékk það ekki.. löng og leiðinleg saga að segja frá því, svo ég sleppi því bara, verð í 6 einingum í fjarnámi og 6 í kvöldskóla. og svo fer ég á eitt námskeið og þá eru eftir 9 einingar allt í allt sem ég tek í sumarskóla og þá verð ég BÚIN og flyt út. AHH þrái sól og sumar og íbúð - of my own!!!

man ekki hvort ég var buin að segja fra niðurstöðum úr einkunnum. þær allavega voru allar bara .. góðar? .. allt yfir 6 til 9. sem er bara fííínt.

er að reyna að bóka handa okkur ferð út um páskana en það virðist bara ekki ganga.. óheppin ég.. nee segi svona.. þetta reddast.. því ég ÆTLA ÚT. ætla líka að fara út í feb-mars. langar sjúklega að fara til spánar og/eða lux. en sjáum hvernig fer.

skelli inn hér nokkrum myndum við tækifæri :)

anna magga, anna lóa, anna linda  og the little one:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 23:21:20 / annamaol

Sálarball!

Vá, frábær endir á leeeeeiðinlegum jólaprófum! Byrjuðum á fimmtud, eg og hugrun að kíkja í bíó á myndina the Holiday! - ég spyr nu bara, Toby hvað???? hehe.. Jude Law er meira en heitur gæji sko! án efa besta myndin min nuna. Svo bara í gær kíktum við á Sálarball!! hörkustemming þar.. fullt af frægu fólki nottla, magni tók líka eitt lag með honum Stebba. Svo var hugrun í essinu sínu með einhverjum gæja sem reddaði okkiur fari heim í GEÐVEIKUM bíl! frábær endir á frábæru kvöldi! í dag er ég bara búin að vera að hjálpa ömmu og afa að flytja.. stemmari .. og nuna bíð ég eftir steikinni honum Dabba .. hann ætlar að bjóða mér í bíltúr! :D myndir koma brátt (eða um leið og hugrun setur þær inn á tölvuna) hehe.

If i dont see you, good morning, good evening and good night :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 11:35:00 / annamaol

próf lok

Mikið rétt, það er að líða undir lok jólaprófa, líklega minna seinustu jólaprófa! Jeijj! Náttúrufræði gekk bara skímó sko! Spænskan var tekin með tropmi sálfræðin 50/50. Íslenska og féló lala, kemur í ljós og svo er bara enska á fimmtud svo verður duttið feitast í það og gert eitthvað skemmmmmtilegt! Já, en til að fagna prófloka, næstum sit ég bara upp í sófa að horfa á One tree hill! Gerist lífið betra.

Bara nokkrir dagar í jólin, hlakka svo til maður! hlakka til að vera hér heima og fá snjó, vona að það verður snjór.

Ég er alveg kjörsamlega fallin í myspeisið, gersamlega hútt! myspace.com/annamaol ef þið viljið tjekka.

Það er annars ekki mikið ífréttum sko.. sorglegt með öll þessi dauðsföll í umferðinni, aka varlega krakkalingar!

Gaman að rifja upp spán með góðum og ekki svo góðum myndum.

Já ég og Hafdís sæta hérna skemmtum okkur svaka vel!

If i dont see you, good morning, good evening and good night


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 20:25:29 / annamaol

Rockstar!

Tók ég bestu ákvörðun lífs míns eða hvað? Ég hefði svo átt að vera að læra fyrir blessaða sálfræði prófið sem ég fór í dag.. EN í staðin fyrir það þá ákvað ég að skella mér á ROCKSTAR! GEÐVEIKT tónleikar! váá.. Þvílíkur hottý sem hann Toby er! ef ég fæ ekki einhvern eins og hann þegar ég stækka þá gerist ég frekar nunna ;) . Svo voru auðvitað restin af liðinu geðveik! Dilana stendur alltaf fyrir sínu og Storm, VÁ, hún kom mér nú bara á óvart, ekki það að ég hélt að hún væri léleg á sviði, hun var bara svo GEÐVIEKT flott á sviði og mjööög góður söngvari!! Magni góður eins og ávalt og allir þarna í gær voru bara geðveikt góð! Sé sko ekki eftir þessu. Tók fullt af myndum og myndböndum sem ég set kannski hér inn síðar ef ég kann og nenni eheh.

Fór annars í prófið mitt í dag í sálfræði og viti menn, mér gekk bara svona rosa vel! Gat allar spurningar nema eina sem var bara 4%. og giskaði svo 10% þannig ég er mjög sátt. Ætti annars núna að vera að læra fyrir íslensku og spænsku sem ég fer í á mánudaginn.. en ég var svo upptekin við að koma upp nýja fína plastmanum og heimabíóinu að tíminn flaug bara frá mér og kl er nuna að ganga 9 .. iss iss.. tek bara nóttina á þetta. Fer í ein 8 próf, enda í 40 einingum á þessari önn fjandinn hafi það .. hehe. 8| EN, þetta reddast.. Held að "þetta reddast" sér orðið formlega mottó mitt. Frábær setning. En jæja ætla að fara að dást að eiginhandar áritunni sem hann bróðir minn og vinir færðu mér frá TOBY, mínum tilvonandi eiginmanni.

Dear Anna, with love, Toby

Ahh.. er að pæla í að setja hana í ramma og setja hana undir kodda :haha:

If i dont see you, good evening, good morning and good night.

Ætti maður að vera jellös?


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 22:48:46 / annamaol

Titillsmitill

Svo maður kvarti nú aðeins.. þá  hvað er AÐ kennarum þessa dagana, eða þessar VIKURNAR þar að segja. Það er búið að vera brjáááálað að gera og enn heldur það áfrám. Er að verða brjál. En það er þessi vika og næsta svo erum við komin í upplestrarfrí!!!8| Hlakka semí til. ekki til prófa heldur frííís.

Komin með vinnu á B5. Kaffihús sem var "ást við fyrstu sýn" þegar ég sá það fyrst. Ekkert nema sætir hommar að vinna það, og ekki er það nú verra.

Var að passa litlu sætu frænkur mínar allan laugard og sunnud. Ekki var það verra heldur.. hehe. Thelma sæta min farin að hlaupa um! ekki labba sko heldur hlaupa. ææ hún er svo sæt. Harpa líka :haha: We had so much fun ---

                      

en já, ætla að gera eitthvað af viti svona einu sinni.. "if i dont see you, good morning, good evening and good night.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 20:34:07 / annamaol

Árni Ráðherra? Passar ekki alveg!

Það er nokkuð ljóst að ekki mun ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn í næstu kostningum. Að hugsa sér að svona glæpamaður eigi möguleika á því að verða ráðherra. Er ekki í lagi með fólk. Hvaða skilaboð er verið að senda fólki með þessu. Jújú, trúi alveg að fólk breytist og allt það, en að kjósa einhvern glæpon í ráðherra-stöðu! Hoppið bara uppí rassgatið á ykkur og þið fáið EKKI mitt atkvæði. Skrái mig úr flokknum!
Svo ætlar hann að koma í framkvæmd göng til vestmanneyja. WTF! Þeim sem langar að fara til þessaðra blessuðu eyju geta flogið, fyrir lítinn pening, eða siglt fyrir minni. Óþarfi að eyða tugum milljónum í þetta. Já eins og ég sagði, þá ætla ég að skrá mig úr flokknum!

Allavega..

Haha svo þarf að segja smá sögu sem gerðist í dag. Þannig var mál  með vexti að ég kata og kristrun ákváðum að fara heim til kötu áðan í eyðu. Við keyptum subway og lögðumst upp í sófa með mynd, Just my luck, subway og kok. Svo bara horfum við á hálfa myndina en svo þurfum við að fara í tíma. Við gengum frá eftir okkur, löbbum inna gang, förum í skóna. Svo um leið og Kata litla lokar hurðinni og ætlar að snúa sér við, þá gefur hún okkur skrítinn svip. Jújú, hún gleymdi lyklunum sínum inni, ekki bara húslyklunum heldur bíllyklunum líka .. :0haha:hahahahahahahha0 Þetta var frekar fyndið. Gat ekkert sagt nema "just my luck". Hún fékk nú samt að klifra inn um svalirnar hjá nágrannanum sínum svo við komustum heil og á réttum tíma í ENSKU. já, þið sem eruð í kvennó og þekkið til Þóreyjar. þá vorum við mjög fegnar að komast á réttum tima 0


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 17:34:31 / annamaol

Verri bloggari en Tinna frænka??

Hehe.. já, ég held það nú.

Mamma og elínogvalberg komu heim á Laugard frá spáni. Fór EKKI og sótti þau, sökum brjálaðs veðurs. Ég Kata og Hugrún hittumst hérna bara á laugard, fórum á Pizza Hut, NAMMI NAMM.. og svo kauptum við mikið mikið nammi og gerðum fyrirlestur um ættleiðingar. Svo þegar við vorum búnar biðum við eftir Hrillingsmynd um einhverja geðveika gellu sem leit ut eins og skrímslu og át fólk.. ógeð, en meðan við biðum eftir henni horfðum við að á og dæmdum leikara í klámmynd haha.. Höfðum ekkert betra að gera á laugardagskvöldi.

Svo var bara ballið á fimmtudaginn. BJALAÐ GAMAN. Fyrirpartyið var hjá mér, nokkuð gaman, þó ég segi sjálf frá. Svo lögðum við í hann á Brodway þar sem skímó var að spila. Get ekki sagt að þeir voru sérstakir.. en þó.. Var farin heim samt um half 1 .. ja, löng saga afhverju haha. Kata greyið ældi í dag og nótt eftir þetta blessaða ball og ég er komin með nóg af afengi næstu mánuði;)

BRJALAÐ að gera í skólanum nu þessa dagana.. ótrúlega asnalegt þar sem við erum að detta í jólapróf. en svona er lífið, óþarfi að tuða um það.

Tinna.. bráðum verðum við að hittast.. kem i heimsokn einn daginn.. :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 23:12:58 / annamaol

Apple-ball

Bara nokkrir dagar í eeeeepppplaballlll! vá hvað það verður GAMAN! með stórum stöfum sko!

Ballið verður sénsagt haldið á Brodway. Búið kl 1 samt:$ .. sem er ekki alveg að gera sig. Held að Skítamórall sé að spila.. allt í læi svona.. ekkert súper úber EN, reddast.

Ma og Pa héldu leið sína til spánar á laugardaginn seinasta. 30 stiga hiti, sól, sólbað, versla.. just name it. Ég er samt ekkert jellos, ég hef skólann og lærdóm og meiri lærdóm.. jeijjj. Mamma ætlar samt að kaupa handa mer eitthvað fallegt :haha:

Bróðir minn hélt partý um helgina.. svaka stemming, fullt af fólki og bara.. já Stemmari..! þar til ég rak alla út.. löng saga af hverju og ég nenni eki að segja hana. Hafdís, þu ert yndi.. ehehehehe.. Takk fyrir samveruna á laugard. Sunnudaginn var bara sofið.. ahhhh.

Ég ætla að halda svo fyrirpartý fyrir ballið hjá okkur, svaka stemmari.. ég meina, ættu foreldrar ekki að fara út oftar?? hehe..

Lokapróf á miðvikudaginn úr íslandsklukku!! 3 Fyrirlestrar í næstu viku!! 2 próf í næstu viku!! FUUUUULT af verkefnum í fjarnáminu.. e-r-f-i-t-t LÍF!

If i dont see you, Good evening, Good morning and Good nighs


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 09:59:09 / annamaol

bráðum kemur hauuuustfríí

Stijum hér í nátturufr.og gerum ekkert. kennarinn er í úglöndum og sagði þennan tima vera verkefna tima en gáfnaljósið hun, skildi ekki n ein verkefni efrtir hana okkur svo við erum bara her svona 7 að hanga. Bara búið að vera brjáááálað að gera í skólanum. endalaust af prófum og verkefnum og prófum og ritgerðir.. booring. Tók mér merira að segja frí í vinnunni í 2 daga til að geta skilað þessu öllu! Helgin seinasta var abra róleg. Við Hugrún fórum út að borða á stælinn og bíó á John Tucker must die. Mjög skemmtileg mynd. og freeeeeekar hott gæ í aðalhlutverki! :)sunnudagurinn var svo bara hafður í að taka ALLT til í herberginu minu og svo lært fram eftir kvöldi!! Fimmutdaginn næsta byrjar sénsagt vetrar frí og er frí í skólanum föst og mánud. vá hvað það verður gott og gaman!! Það eru 2 próf nuna framundan, í dag, bara buin að lesa fyrir eitt svo eg er farin að sinni =)

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:15:02 / annamaol

Magni og Dilana

Krakkar, þið sem misstuð af þessu.. óheeeeeppppiiiin!!! vá þetta var svo skemmtilegt!! hittumst fyrir tónleikana hjá Kristínu og fórum svo í taxa á broadway. Það fylltist allt frekar fljótt og við vorum fremst alla tónleikana.. allavega ég og Sveina. það var samt ekkert nema 50+ fólk þarna.. ROSALEGT sko.. það var alveg blindfullt og alveg gengið af göflunum.. ein beit Sveinu takk fyrir kærlega!! En þrátt fyrir gamalt fullt fólk þá var þetta alveg magnaðir tónleikar. Veit ekki hvert líðurinn ætlaði þegar Magni tók Dolphins cry og Dilana tók Roxanne .. eða hvernig sem maður skrifar það.

Seinasta helgi var fín. sótti hörpu áleikskolann og thelmu til dagmömmunnar og var með þær þar til joi spói kom heim.. og hvað kom hann með heim.. 3 seríur af O.C OG ONE TREE HILL!!! og sex in the city 5 og 6 seríu. vá hvað ég var glöð. Svo var ég að passa aftur á laugardegium.. til c.a 5 um nóttina en það var fínt að leggja sig í leisíboy stólnum;) Annars á föstud var líka matarboð hjá Rósu.. hittumst þar 6. mjög kósí og góður matur.. takk fyrir moi. Sunnudagruinn var róóóólegur.. fór svo í bíó á 11 sept myndina..twin towers. mjöööög góð. var með tárin ALLAN tímann..

var buin kl 9 i skolanum. very nice. svaf í dag og horfði á o.c .. gerist lífið betra?


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 16:34:29 / annamaol

Concerts toniiiight!

Dilana og Magni á Brodway i kvöld. Im soooo there! hlakka ótrulega mikið til! Ætlum að hittast, held ég, heima hjá Kristínu stuð og drekka okkur haugafullar.. djok! annars Fór ég í leikhús í gær á footloose (hvernig sem maður skrifar það). Fínt bara, ótrúlegt samt að af öllum þessum krökkum voru bara 3 sem sungu vel.. wírd! Á þriðjudaginn af tilefni AFMÆLI MINU, 19 ÁRA, var ferðinni haldið í bíó á United 93. Freeeeekar sorgleg, hélt samt í mér að grenja af fullum krafti.. quote kvöldsins var " its not like we dont know how it ends" ..haha johanna min, elskan, þu skilur mig.. getur rétt ymindað þér hvað ég er að hugsa þegar ég skrifa þetta haha... var að kláraað passalitu sætu frænkur minar, just looove them, ein var að læra að kissa.. frekar blautir haha.. anywho. ætla að gera eitthavð af mér.. og láta mer HLAKKA til kvöldsins.. vúhú..always and forever..anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 15:39:08 / annamaol

Helgin í hnotskurn

Á föstudagin var gerð heiðarleg tilraun til að fara niðrí bæ.. vorum ekki vissar hvað lengi né neitt.. fórum á Sólon í afmæli til vin jóhönnu. Fekk mér einn bjór og bara stemmari þar til einn feitasti ógeðslegasti dyravörður sem ég hef séð kemur, ótrúlega fúll og ljótur og örugglega vond lykt af honum, og biður um skilríki. Allir í þessu afmæli 95% voru undir aldri. Ég spyr bara kurteisilega hvað sé mikið inn (hvort ég get ekki bara sínt honum mitt skilríki) hann svarar geggjað fúll 22!! .. ef hann ætlar að vera með stæla verð ég nu bara með stæla á móti. ég gaf honum svip og sagði : 22 ára.. síðan hvenar er 22 inn á SÓLON?? ekkert nema bara grjón og útlendingar og ljott fólk þarna inn.. djö sora pleis er þetta.. hehe hann öskraði SKILRÍKI! hehe löbbuðum bara út ;) .

Í gær kom Eydís og sótti okkur jojo og við fórum til vin hennar í Breiðholtinu, stoppuðum i sjoppu á leiðinni, var skíthærdd leið eins og í blökkuhverfi í bandaríkjunum, einhverju gettói. en ég lifði af. Svo skutlaði Edona okkur niðrí bæ og við fórum í röð .. edona farin inn, eg komin með grænt ljos, johanna komin með grænt ljos, en þá var röðin komin af Eydísi.. hun gleymdi sínum (persónulegu) skilríkjum. hann hleypti okkur ekki inn. Þá var leiðinni haldið á Gaukinn.. þegar við vorum að fara inn fór rafmagnið af og engum hleypt inn, bara út. Þá fórum við bara á Prikið, sýndi mín skilríki BTW. Ekkert nema kvennó lið þarna.. bara samkoma sko. Gunni kom svo og við gátum ekki andað fyrir ó-fresku-lofi. Þannig við lögðum af stað til að fara á hverfis en þar var huuuuge röð svo við fórum á celtic (man ekki hvað hann heitir en eitthvað svona, á móti hverfis) geggjuð tónlist en var orðin freeeekar þreytt kl orðin 4. Lögðum þá af stað á pronto/devitos, veit ekki hvort er hvað og fengum okkur pizzu svo heim að sooooofa! :haha:

Góð helgi.. hefði nu átt að vera að læra samt freeeeekar mikið að gera.. lesa 3 bækur, prof á morgun, isl ritgerð fyrir þriðjud og fullt að gera í fjarnáminu svo söguverkefni ásamt fuuuult fleirra.. þetta hefst einhverntimann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 15:40:43 / annamaol

9/11

Eigum við að halda 2 mínútna silence? *-------------------------Þögn------------------------* Helgin var fín.. svo sem. Á föstud fórum við jojo eydís edona og alvin í bíó á STEP UP! mögnuð kvikmynd hér á fer. Svo fór ég að rúnta smáveigis. Á laugard fórum við jójó út að borða og svo leigðum við mynd og keyptum n-a-m-m-i! svo í afmæli til estherar en stoppuðum þó studd vegna þreytu minnar! á sunnud var ekkkkkert gert nema leigt spólu elska letilíf. . Vorum að kaupa bíl, dodge calimber .. 2007 árgerð. geeeeeðveikur! Skelli meira hér inn í kvöld.. chau

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 15:05:07 / annamaol

i love the helgas..

Ef það er nu ekki bara komin helgi! Best í heimi..frábærast.. æðislegast ..

anywho..

seinasta helgi var bara slappað af .. inn og í gegn .. rólegheit á föstudaginn.. leigðum RENT ef það er ekki góð mynd þá veit ég ekki hvað! Fór meira að segja að kaupa hana á sunnudaginn.. gat ekki hugsað mer að eiga hana ekki!! Á laugardaginn var sumarhátíð skerfirðinga. Mér finnst þetta svo krúttlegt sveitafélag.. það var loftkastalar og svona fyrir börnin langt fram á nótt og grill svo um kvöldið fyrir alla. Svo fór ég til Önnu Berglindar sem var í bænum og við fórum á Pravda. Subbu staður maður! ekkert nema feitir svartir perrar að reyna að káfa á manni!! Notaði MITT skilríki meira að segja.. Vorum þar til c.a 5 og þá var okkur skutlað heim! vaknaði frekar hress þegar mamma kom inn til min og ég stökk á fætur ber hold hér og þar og fullt af fólki í dyragættinni hahaha. ALLAVEGA, í kvöld ætlum við stelpurnar að hittast á kaffihúsi, hef ekki séð þær eiginlega í allt sumar (L)! svo verður örugglega skoðað lífið í miðbænum..  

Á MORGUN verður hinsvegar haldið til Keflavíkur á ljósanótt og ball með skímó!! ALLIR AÐ KOMA ÞANGAÐ! örugglega hörku stemmari þar.. þess fyrir utan verður slappað af því ég er letidýr. . :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 17:30:44 / annamaol

Long time no seen

Sælt veri fólkið...

Ég er því miður komin hér á klakann eftir 6 vikna frí á spáni og mallorca. Ekkert nema rok og rigning og kalt og .. oh hefði ekkert á móti því að vera lengur úti! Flyt þangað næsta vor.. jibbí!

Skólasetning var í dag, ég Kata og Hugrún mættum hressar og ready for school. Vá er ekki að nenna því að fara að mæta kl 8 á morgun í félagsfræði! Umsjónarkennarinn okkar er ljúf sem lamb hehehe húmor!

Á spáni er gott að djamma og djúsa.. já semí rétt. Voða rólegt samt hjá okkur þar. Hafdís frænka kom í viku til okkar áður en fjölskyldan hennar kom. Ekki mikið gert svo sem nema liggja í sólbaði, versla, borða og fór í klippingu.. víí. Það voru gestir hjá okkur aaaaaaallan tímann.. glatað keis alveg. vorum samt sem áður "ein" seinustu dagana. Kom svo heim 2 ágúst og fór í útskriftarferð til Mallorca 3 águst. Fórum eitthvað um 130 krakkar út. Skíta hótel, skýjað fyrstu dagana .. en mjög gaman. Það voru flestir drukknir ALLA fyrstu vikuna, svo þreyttist mannskapurinn.. nema nokkar góðvinkonur hehe.. takið þetta til ykkur. bestu mynningarnar frá mallorca er líklegast Subway ferðin min þar sem afgreiðslukonan öskraði á mig og sagði mér að hætta að hlæja og TAKE IT EASY! .. snéri mer nu bara að henni og öskraði á hana á móti, YOU take it easy.. og dreif mig svo út. Sturtuferðirnar minar eru lika eftirminnilegar, tók heví á að fara inn í hana.!!!! grét mig í svefn liggur við því mer kveið svo að fara í hana næsta dag.. hehe.. gróft en ok! annars gekk þessi ferð ljómandi fyrir utan að allir urðu veikir, nokkrir lentu uppá spítala, lamdir, týndu fötum á sströndinni eftir nektarsund í sjónum haha! Takk fyrir góða ferð!!!

Fór annars líka á færeyska daga helgina áður en eg fór út. Þar var hörkustemming fyrir utan miiiiiikla drykkju hjá litlu fólki!! Eg jojo og erla mættur þar hressar á föstudeginum en lögðum af stað í bæjinn semí "hressar" kl 8 á sunnudagsmorgun! =)

Annars er það bara framundan skóli og vinna.. puhuh..! Lifið heil og verið vinir ... Kv Anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3